Auðkennisnúmer tækisins fundið
Tækið er með einkvæmt auðkennisnúmer. Númer tækisins nefnist IMEI (International
Mobile Equipment Identity). Þú ættir að skrá þetta númer hjá þér og geyma það. Þú gætir
t.d. þurft að nota það þegar þú skráir tækið inn í Xperia™ Care-þjónustuna. Ef tækinu er
stolið geta sum símafyrirtæki einnig notað IMEI-númerið til að koma í veg fyrir að tækið fái
aðgang að símkerfinu í þínu landi eða landsvæði.
IMEI-númer skoðuð á merkjabakkanum
1
Opnaðu hlífina yfir nano SIM-korta- og minniskortaraufinni.
2
Fjarlægðu bakkann fyrir SIM-kort/minniskort. Settu nögl fingurs eða einhvern hlut
með löngum, grönnum oddi undir brún merkibakkans og dragðu síðan bakkann
út. IMEI-númerið er birt á merkjabakkanum.
Til að sjá IMEI-númerið geturðu líka opnað númeravalið í símanum og slegið inn
*#06#
.
IMEI-númer skoðað/uð í gegnum stillingar tækisins
1
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann > Staða > IMEI-upplýsingar.
17
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.