Sony Xperia XZ - SIM-kortavörn

background image

SIM-kortavörn

Þú getur læst og opnað hvert SIM-kort sem þú notar í tækinu þínu með PIN-númeri

(Personal Identitfication Number). Þegar SIM-korti er læst er áskriftin sem tengist kortinu

varin gagnvart misnotkun, sem þýðir að þú verður að slá inn PIN-númer í hvert sinn sem

kveikt er á tækinu.
Ef þú slærð PIN-númerið þitt of oft rangt inn læsist SIM-kortið. Þá þarftu að slá inn PUK-

númerið þitt (Personal Unblocking Key) og síðan nýtt PIN-númer. Þú færð PIN- og PUK-

númerin hjá símafyrirtækinu.

16

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Lás SIM-korts settur upp eða tekinn af

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Setja upp SIM-kortslás.

3

Pikkaðu á sleðann

Læsa SIM-korti til að gera læsingu SIM-korts virka eða óvirka.

4

Sláðu inn PIN-númer SIM-kortsins og pikkaðu á

Í lagi. Lás SIM-korts er nú virkur

og biður þig um að slá inn PIN-númerið í hvert sinn sem þú endurræsir tækið.

PIN-númeri SIM-kortsins breytt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Setja upp SIM-kortslás.

3

Pikkaðu á

Breyta PIN-númeri SIM.

4

Sláðu inn gamla PIN-númer SIM-kortsins og pikkaðu á

Í lagi.

5

Sláðu inn nýtt PIN-númer SIM-kortsins og pikkaðu á

Í lagi.

6

Sláðu aftur inn nýtt PIN-númer SIM-kortsins og pikkaðu á

Í lagi.

Læst SIM-kort opnað með PUK-númeri

1

Sláðu inn PUK-númerið og pikkaðu á

.

2

Sláðu inn nýtt PIN-númer og pikkaðu á

.

3

Sláðu aftur inn nýja PIN-númerið og pikkaðu á

.

Ef þú slærð inn rangt PUK-númer of oft þarftu að hafa samband við símafyrirtækið til að fá nýtt

SIM-kort.