Sony Xperia XZ - Rafhlöðu- og orkustjórnun

background image

Rafhlöðu- og orkustjórnun

Tæki þitt er með innbyggða rafhlöðu. Til að fá sem mest úr henni þarftu að fylgjast með

orkunotkun forrita og eiginleika. Notaðu Rafhlöðuumsjón til að auka endingu

rafhlöðunnar. Orkusparnaðarstillingar eru virkjaðar sjálfgefið til að draga úr orkunotkun og

aðrar leiðir til orkusparnaðar eru tiltækar til að draga úr orkunotkun rafhlöðunnar enn

frekar ef með þarf.
Orkusparnaðaaðgerir minnka forgang sumra aðgerða tækisins sem ekki eru

bráðnauðsynlegar svo sem háskerpumynda, aðgerða á netkerfinu eins og

staðsetningarþjónustu, samstillingu forrita og skönnun Wi-Fi í bakgrunni. Ef þú vilt ekki

þeir hafi áhrif á eitthvert forrit geturðu gert undantekningu um það í valmyndinni fyrir

fínstillingu rafhlöðunnar. Þetta hefur engin áhrif á símtöl og SMS-skilaboð.

Við kerfisuppfærslur geta tiltækar orkusparnaðarstillingar breyst á tækinu þínu.

Rafhlöðunotkun, áætlaður rafhlöðutími og hollráð fyrir orkusparnað skoðuð

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Rafhlaða. Yfirlit birtist sem sýnir rafhlöðuprósentu

og áætlaðan rafhlöðutíma.

3

Pikkaðu á

SÝNA RAFHLÖÐUNOTKUN til að skoða lista eiginleika og þjónustu

sem hafa notað rafhlöðuna síðan hún var síðast hlaðin. Pikkaðu á atriði til að fá

upplýsingar um hvernig draga má úr rafhlöðunotkun þess.

Rafhlöðunotkun forrita skoðuð

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit.

3

Veldu forrit og skoðaðu rafhlöðunotkun þess undir

Rafhlöðunotkun.

Almennar ábendingar um notkun til að bæta afköst rafhlöðunnar

Hægt er að nota eftirfarandi aðferðir til að bæta afköst rafhlöðunnar:

Minnkaðu birtustig skjásins, sjá

Skjástillingar

á bls. 55.

Slökktu á Bluetooth®, Wi-Fi og staðsetningarþjónustu þegar þú þarft ekki þessa

eiginleika.

Slökktu á tækinu eða notaðu flugstillingu ef þú ert utan þjónustusvæðis eða

sambandið er lélegt. Annars leitar tækið sífellt að símkerfi, sem eyðir orku.

Notaðu Wi-Fi netkerfi í staðinn fyrir reiki þegar þú ert erlendis. Reiki leitar að

heimasímkerfinu þínu og eykur álag á rafhlöðuna þar sem tækið þarf að senda á

meiri styrk, sjá

Wi-Fi®

á bls. 46.

Breyttu stillingum samstillingar fyrir tölvupóst, dagbók og tengiliði, sjá

Samstilling

við netreikninga

á bls. 52.

Athugaðu hvaða forrit nota mikla rafhlöðuorku og skoðaðu ábendingar um

rafhlöðusparnað í tækinu í tengslum við þessi forrit.

Breyttu tilkynningatíðni forrits, sjá

Tilkynningar

á bls. 28.

Slökktu á heimild forrits til að deila staðsetningu, sjá

Stillingar forrita

á bls. 57.

Fjarlægðu forrit sem þú notar ekki, sjá

Forritaskjár

á bls. 23.

Hlustaðu á tónlist í handfrjálsu tæki frá Sony. Handfrjáls búnaður notar minni

rafhlöðuorku en hátalarar tækisins.

Endurræstu tækið annað veifið.

35

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Undantekningu bætt við orkusparnaðareiginleika

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Rafhlaða.

3

Pikkaðu á og veldu

Rafhlöðusparnaður. Þú munt sjá lista yfir forrit sem eru ekki

hámörkuð.

4

Til að bæta við eða fjarlægja forrit af listanum pikkarðu á

LÍTIL FORRIT og velur

eða afvelur forrit úr listanum til að breyta hámörkunum þess.

5

Listinn yfir forrit sem eru ekki hámörkuð verður uppfærður í samræmi við stillingar

þínar.

Ekki er hægt að undanskilja forrit frá því að vera hámörkuð með Ultra STAMINA-stillingum.

Þú getur einnig grunnstillt

Rafhlöðusparnaður í Stillingar > Forrit > > Sérstakur aðgangur.

STAMINA-stilling

Mismunandi eiginleikar verða takmarkaðir eða slökkt á þeim, allt eftir STAMINA-stiginu til

þess að draga úr rafhlöðunotkun. Meðal þeirra eru vinnsla myndþýðingar, hreyfimyndir og

birtustig skjás, myndbreytingar, gagnasamstilling forrita í bakgrunni, titringur (nema fyrir

móttekin símtöl), straumspilun og GPS (þegar slökkt er á skjánum). birtist á

stöðustikunni.

Ef þú deilir tæki með mörgum notendum getur verið að þú þurfir að skrá þig inn sem eigandi,

það er að segja aðalnotandi, til að gera STAMINA-stillinguna virka eða óvirka.

STAMINA-stilling gerð virk eða óvirk

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Rafhlaða.

3

Pikkaðu á

STAMINA-stilling og svo á sleðann til að kveikja eða slökkva á

eiginleikanum. Þegar STAMINA-stillingin er virkjuð geturðu valið viðbótarkosti til

dæmis geturðu stillt prósentu sjálfvirkrar ræsingar eftir eigin óskum.

Þú getur undanþegið forrit frá að vera hámörkuð með STAMINA-stillingunni í valmyndinni fyrir

fínstillingu rafhlöðunnar.

Ultra STAMINA-stilling

Rafhöðurendingin batnar umtalsvert en tiltækum forritum fækkar og gagnatenging og Wi-

Fi eru aftengd. Símtöl og SMS eru áfram í boði. Heimaskjárinn breytist og birtist í

stöðustikunni.

Ef þú deilir tæki með mörgum notendum getur verið að þú þurfir að skrá þig inn sem eigandi,

það er að segja aðalnotandi, til að gera Ultra STAMINA-stillinguna virka eða óvirka.

Kveikt á Ultra STAMINA-stillingu

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Rafhlaða.

3

Pikkaðu á

Ultra STAMINA stilling og svo á RÆSA.

4

Staðfestu til að virkja.

Ekki er hægt að undanskilja forrit frá því að vera hámörkuð með Ultra STAMINA-stillingum.

Slökkt á Ultra STAMINA-stillingu

1

Dragðu stöðustikuna niður til að opna tilkynningasvæðið.

2

Pikkaðu á

Slökkva á Ultra STAMINA stillingu.

3

Pikkaðu á

Í lagi.

Ef slökkt er á Ultra STAMINA-stillingunni verður tækið endurræst.

Rafhlöðuumsjón

Rafhlöðuumsjón er ekki í boði á Bandaríkjamarkaði.

36

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Notaðu Rafhlöðuumsjón til að auka endingu rafhlöðunnar.
Rafhlöðuumsjón greinir hleðslumynstrin þín og áætlar upphafs- og lokatíma reglulega

hleðslutímabilsins þíns. Hleðslunni er stýrt þannig að rafhlaðan nái 100% rétt áður en

hleðslutækið er aftengt.

Rafhlöðuumsjón stýrir ekki hleðsluhraðanum fyrr en hún greinir reglulegt hleðslutímabil sem er

að minnsta kosti 4 klukkustundir á nokkurra daga tímabili.

Kveikt eða slökkt á rafhlöðuumsjón

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á og finnur svo og pikkar á Stillingar.

2

Pikkaðu á

Rafhlaða og svo á Rafhlöðuumsjá.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja eða slökkva á

Rafhlöðuumsjá.

Rafhlöðuumsjón vistar lærð mynstur reglulegs hleðslutímabils. Þó að slökkt hafi verið á

valkostinum lagar hann sig að lærðu mynstrunum þegar kveikt er á honum aftur.