Sony Xperia XZ - Tækið hlaðið

background image

Tækið hlaðið

Notaðu alltaf upprunalegt hleðslutæki frá Sony og USB Type-C™-snúru sem ætluð er fyrir þína

gerð af Xperia™. Önnur hleðslutæki og snúrur geta lengt hleðslutímann, hugsanlega hleðst

tækið ekki eða það getur skemmst. Gættu þess að öll USB-tengi séu alveg þurr áður en USB

Type-C™-snúran er tengd.

Hleðslutæki sem stungið er í samband við rafmagnsinnstungu hleður tækið hraðar en

hleðsla gegnum tölvu. Hægt er að nota tækið á meðan það er í hleðslu.
Ef rafhlaðan var tóm geta liðið allt að 30 mínútur þangað til tækið bregst við hleðslunni. Á

meðan getur skjárinn verið alveg svartur án þess að sýna hleðslutáknið. Athugaðu að það

getur tekið allt að fjórar klukkustundir að fullhlaða alveg tóma rafhlöðu.

Tækið er með innbyggða, endurhlaðanlega rafhlöðu sem aðeins heimilaður

viðgerðarþjónustuaðili Sony getur skipt um. Þú ættir aldrei að reyna að opna eða taka tækið í

sundur sjálf(ur). Það getur valdið skemmdum og fellt ábyrgðina úr gildi.

Tækið hlaðið

1

Stingdu hleðslutækinu í rafmagnsinnstungu.

2

Stingdu öðrum enda USB Type-C™-snúrunnar í hleðslutækið (eða USB-tengið á

tölvunni).

3

Stingdu hinum enda snúrunnar í USB Type-C™-tengið á tækinu. Tilkynningaljósið

logar þegar hleðsla hefst.

4

Þegar tækið er fullhlaðið skaltu taka snúruna úr sambandi við símann með því að

toga hana beint út. Gættu þess að beygla ekki tengið.

Mikilvægt er að nota USB Type-C™-snúruna (sem fylgir með) þegar tækið er hlaðið þar sem

annars konar USB-snúrur geta skemmt tækið.

Ef rafhlaðan var alveg tæmd gætu liðið nokkrar mínútur áður en kviknar á tilkynningaljósinu og

hleðslutáknið birtist.

34

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Tilkynningarljós fyrir hleðslustöðu rafhlöðu

Grænt

Rafhlaðan er í hleðslu og rafhlöðuvísirinn sýnir meira en 90%

Appelsínugult

Rafhlaðan er í hleðslu og rafhlöðuvísirinn sýnir minna en 90%

Rautt

Rafhlaðan er í hleðslu og rafhlöðuvísirinn sýnir minna en 15%